fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Manchester United sendir frá sér yfirlýsingu

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 12. febrúar 2026 19:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar ummæla meðeigandans Sir Jim Ratcliffe um innflytjendamál og fleira.

Ratcliffe baðst afsökunar eftir að hafa sagt að Bretland hefði verið nýlendu­vætt af innflytjendum og að fjöldi fólks á bótum væri þungur baggi á samfélaginu.

„Manchester United er stolt af því að vera félag inngildingar. Fjölbreyttur hópur leikmanna, starfsfólks og stuðningsmanna endurspeglar sögu og arfleifð Manchester, borgar sem allir geta kallað heimili sitt,“ segir meðal annars í yfirlýsingu United, hvar ekki er þó minnst á Ratcliffe með beinum hætti.

Félagið ítrekar skuldbindingu sína við jafnrétti og fjölbreytileika og bendir á þátttöku í verkefnum gegn kynþáttafordómum, hatursorðræðu og mismunun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði