fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Reynsluboltinn skrifaði söguna

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 12. febrúar 2026 21:30

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

James Milner, miðjumaður Brighton, hefur jafnað metið yfir flesta leiki í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Milner kom inn af bekknum í leik Brighton gegn Aston Villa í gær og lék þar með sinn 653. leik í deildinni. Hann jafnar þar met fyrrum liðsfélaga síns, Gareth Barry.

Ferill Milner spannar yfir tvo áratugi og á þeim tíma hefur hann unnið fjölda titla, þar á meðal þrjá Englandsmeistaratitla, tvo bikartitla og Meistaradeildina.

Hinn 40 ára gamli leikmaður gæti orðið eini methafinn þegar Brighton heimsækir Brentford 21. febrúar, fari hann inn á í þeim leik.

Milner hóf feril sinn hjá Leeds og hefur einnig leikið fyrir Newcastle, Aston Villa, Manchester City og Liverpool áður en hann gekk til liðs við Brighton.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands