fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Enska sambandið skoðar að sekta Ratcliffe sem biðst afsökunar ef einhver móðgaðist

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 12. febrúar 2026 13:16

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Meðeigandi Manchester United, Jim Ratcliffe, gæti átt yfir höfði sér viðurlög frá enska knattspyrnusambandinu (FA) vegna ummæla sinna um innflytjendamál.

Ratcliffe hefur vakið mikla athygli og gagnrýni fyrir ummæli sem hann lét falla nýverið í viðtali, þar sem hann ræddi stöðu bresks efnahags og innflytjendamál. Ummælin hafa valdið reiði víða og hefur forsætisráðherra Bretlands, Keir Starmer, kallað eftir því að Ratcliffe biðjist afsökunar.

Ratcliffe hefur síðan sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann segist biðjast afsökunar ef orð hans hafi móðgað fólk. Þrátt fyrir það eru enskir fjölmiðlar með það eftir heimildum að FA sé að fara yfir málið til að meta hvort ummælin geti talist skaða orðspor knattspyrnunnar.

Komi sambandið að þeirri niðurstöðu gæti verið opnuð formleg rannsókn sem gæti leitt til ákæru eða sektar. Þó möguleg fjársekt myndi vart bíta á einn auðugasta mann Bretlands, væri slíkt mál óþægilegt fyrir Ratcliffe, sem er stofnandi efnafyrirtækisins INEOS og hluthafi í Manchester United.

Í viðtali við Sky News sagði Ratcliffe meðal annars. „Þú getur ekki verið með hagkerfi þar sem níu milljónir manna eru á bótum og mikill fjöldi innflytjenda kemur inn í landið.“

Málið hefur skapað töluverða umræðu í Bretlandi og óvíst er hvort FA muni grípa til frekari aðgerða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið