fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Guardiola segir að þetta sé stærsta vandamál Haaland

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 18:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, hefur hvatt Erling Haaland til að setja minni pressu á sjálfan sig eftir að norski framherjinn viðurkenndi að frammistaða hans hefði verið sveiflukennd undanfarið.

Haaland skoraði sigurmark úr vítaspyrnu í uppbótartíma gegn Liverpool á Anfield um helgina, en hann hefur nú ekki skorað úr opnum leik í átta deildarleikjum í röð.

Þrátt fyrir það er hann kominn með 21 mark á tímabilinu og er líklegur til að vinna gullskóinn á ný.

Haaland sagði sjálfur eftir leikinn að hann gæti gert betur og bæta þyrfti leik sinn. Guardiola telur þó að framherjinn sé of harður við sjálfan sig.

„Vandamálið hjá Erling er að hann þarf að takast á við eigin tölur og væntingar,“ sagði Guardiola.

„Það er hans áskorun. Hann leggur mikla ábyrgð á sjálfan sig.“

Spánverjinn segir að lykillinn sé einfaldleiki. „Ég segi honum alltaf að setja ekki of mikla pressu á sig. Treysta eðlishvötinni, hreyfingunum og innsæinu. Hann gerir það betur en nokkur annar í heiminum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði