fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Chelsea glutraði forskotinu niður og vandræði Tottenham halda áfram – Sjáðu ótrúlegt klúður Palmer í blálokin

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 10. febrúar 2026 21:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þremur leikjum var að ljúka í ensku úrvalsdeildinni og var nóg um mörk.

Á Stamford Bridge var Chelsea komið í frábær mál gegn Leeds en Joao Pedro og Cole Palmer komu þeim í 2-0. Lukas Nmecha minnkaði muninn um miðjan seinni hálfleik og skömmu síðar jafnaði Noah Okafor með mjög skrautlegu marki.

Chelsea leitaði að sigurmarkinu og undir lokin klúðraði Palmer dauðafæri á ótrúlegan hátt, eins og má sjá hér að neðan. Allt kom fyrir ekki og lokatölur 2-2.

Vandræði Tottenham halda áfram og liðið er komið í alvöru fallbaráttu, en Newcastle rétti úr kútnum með sigri á þeim í kvöld. Malick Thiaw og Jacob Ramsey skoruðu í 1-2 sigri og er liðið um miðja deild.

Bournemouth vann loks 1-2 sigur á Everton, en stöðutöfluna má sjá hér að neðan.

Standings provided by Sofascore

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands