fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Amorim orðaður við mjög áhugavert starf

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 08:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United, Ruben Amorim, er sagður líklegur til að taka við sem stjóri portúgalska stórliðsins Benfica fyrir næstu leiktíð.

Amorim var rekinn frá United í janúar eftir 14 mánaða dvöl á Old Trafford, þar sem árangurinn stóð ekki undir væntingum þrátt fyrir að miklar vonir hafi verið bundnar við hann eftir tíð hans með Sporting í heimalandinu.

Amorim stýrði United í 63 leikjum og vann 25 þeirra, gerði 15 jafntefli og tapaði 23 sinnum. Michael Carrick tók við liðinu í kjölfarið og hefur leitt það til fjögurra sigra í röð.

Samkvæmt ESPN er gert ráð fyrir að núverandi stjóri Benfica, goðsögnin Jose Mourinho, láti af störfum næsta sumar og taki við portúgalska landsliðinu eftir HM 2026. Í kjölfarið er Amorim sagður helsti kandídatinn til að taka við hjá Benfica, en hann ku njóta mikils stuðnings á meðal stjórnarinnar þar.

Amorim hefur áður stýrt bæði Sporting og Braga við afar góðan orðstýr, á tvo meistaratitla til að mynda. Hann hefur þó einnig viðurkennt að hafa alist upp sem stuðningsmaður Benfica, þrátt fyrir að hafa síðar stýrt erkifjendunum í Lissabon.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands