fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Kveðst furðu lostinn – „Mér finnst ótrúlegt að Gylfi Þór láti bjóða sér þetta“

433
Þriðjudaginn 10. febrúar 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Menn fettu fingur út í landsliðshóp Arnars Gunnlaugssonar fyrir vináttuleik gegn Mexíkó í lok mánaðar í Þungavigtinni.

Leikurinn fer fram ytra og er hann spilaður utan opinbers landsleikjaglugga, sem þýðir að hann er nánast eingöngu skipaður leikmönnum úr íslenska boltanum.

„Þegar þessi hópur var tilkynntur sannaðist fyrir mér að þetta verkefni er ekki til neins,“ sagði Kristján Óli Sigurðsson. Hann og Mikael Nikulásson, annar meðlimur þáttarins, furðuðu sig báðir á háum aldri leikmanna í hópnum.

Gylfi Þór Sigurðsson snýr þá aftur í landsliðið í fyrsta sinn síðan haustið 2024.

„Mér finnst ótrúlegt að Gylfi Þór láti bjóða sér þetta. Arnar er aldrei búinn að velja hann. Hann var frábær í haust, þá átti að velja Gylfa Þór Sigurðsson,“ sagði Kristján hins vegar um það mál.

Leikurinn hefst klukkan 02 að íslenskum tíma aðfaranótt fimmtudagsins 26. febrúar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði