fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Pressan

Símtal Trump við lögreglu árið 2006 afhjúpað í Epstein-skjölunum – „Guði sé lof að þið ætlið að stoppa hann“

Pressan
Þriðjudaginn 10. febrúar 2026 10:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum lögreglustjóri í Flórída, sem rannsakaði níðinginn Jeffrey Epstein mörgum árum áður en hann var handtekinn og mál hans alræmt, segist hafa fengið símtal frá Donald Trump Bandaríkjaforseta þar sem Trump þakkaði lögreglunni fyrir að ætla að afhjúpa níðinginn. Umrædd rannsókn hófst árið 2005 og lauk með sátt þar sem Epstein játaði sök að hluta gegn því að þurfa ekki að svara til saka fyrir dómstólum. Epstein var dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir að hafa keypt vændi af ólögráða ungmenni og var hann skráður á skrá yfir kynferðisbrotamenn.

ABC News greina nú frá því að Donald Trump hafi á rannsóknartímanum rætt við Michael Reiter, þáverandi lögreglustjóra, en upplýsingar um símtalið má finna í Epstein-skjölunum sem dómsmálaráðuneytið birti nýlega. Símtalið átti sér stað í júlí árið 2006.

„DONALD TRUMP sagði Reiter að hann hafi vísað EPSTEIN á dyr klúbbs síns. TRUMP hringdi til [skrifstofu lögreglunnar í Palm Beach] til að segja: „Guði sé lof að þið ætlið að stoppa hann, allir vita að hann hefur stundað þetta“.“

Trump mun hafa tekið fram að allir í New York borg væru meðvitaðir um að Epstein væri ógeð, en benti Trump lögreglu á að beina spjótunum að samverkamanni Epsteins og viðskiptafélaga, Ghislaine Maxwell, en hún situr nú í 20 ára fangelsi fyrir sinn hlut í brotum níðingsins.

„TRUMP sagði [Reiter] að hann hafi eitt sinn verið í kringum EPSTEIN þegar unglingar voru viðstaddir og Trump hafi: „rokið út eins og skrattinn væri á hælum mér“. TRUMP var einn þeirra fyrstu til að hafa samband við lögreglu eftir að fólk komst að því að EPSTEIN væri til rannsóknar.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Ryanair með nýjung á öllum flugvöllum

Ryanair með nýjung á öllum flugvöllum
Pressan
Í gær

Hún blekkti alla með englaandlitinu – Óhugnaður á óhugnað ofan

Hún blekkti alla með englaandlitinu – Óhugnaður á óhugnað ofan
Pressan
Fyrir 4 dögum

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör
Pressan
Fyrir 4 dögum

Óhugnanleg ráðgáta leyst – Lík fannst sundurbútað í ferðatöskum árið 1998

Óhugnanleg ráðgáta leyst – Lík fannst sundurbútað í ferðatöskum árið 1998
Pressan
Fyrir 4 dögum

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Konan sem giftist föður sínum rýfur þögnina um stöðu sína í dag

Konan sem giftist föður sínum rýfur þögnina um stöðu sína í dag