fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Gylfi Þór snýr aftur í íslenska landsliðið

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 9. febrúar 2026 13:21

Gylfi Þór Sigurðsson, Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Gunnlaugsson hefur opinberað landsliðshóp sinn fyrir komandi vináttulandsleik gegn Mexíkó, sem er spilaður utan landsleikjaglugga, aðfaranótt 26. febrúar ytra.

Flestir leikmenn sem spila erlendis eru því ekki til taks, en Kolbeinn Þórðarson, leikmaður Gautaborgar, er þó í hópnum. Þar er einnig Damir Muminovic, nýr leikmaður Grindavíkur, en aðrir eru úr Bestu deildinni.

Gylfi Þór Sigurðsson, markahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi, er valinn af Arnari Gunnlaugssyni í landsliðið í fyrsta sinn. Liðsfélagar hans úr Víkingi, Karl Friðleifur Gunnarsson, Daníel Hafsteinsson, Valdimar Þór Ingimundarson, Helgi Guðjónsson og Aron Elís Þrándarson eru einnig í hópnum. Íslandsmeistararnir eiga flesta fulltrúa.

Guðmundur Þórarinsson, nýr leikmaður ÍA, snýr einnig aftur í landsliðið í þessum leik. Anton Ari Einarsson verður að öllum líkindum í rammanum en í hópnum er einnig Viktor Freyr Sigurðsson, sem var frábær með Fram á síðustu leiktíð.

Leikurinn hefst klukkan 02 að íslenskum tíma aðfaranótt fimmtudagsins 26. febrúar.

Hópurinn:

Anton Ari Einarsson – Breiðablik

Viktor Freyr Sigurðsson – Fram

Höskuldur Gunnlaugsson – Breiðablik

Karl Friðleifur Gunnarsson – Víkingur R.

Damir Muminovic – Grindavík

Hans Viktor Guðmundsson – KA

Guðmundur Kristjánsson – Stjarnan

Guðmundur Þórarinsson – ÍA

Baldur Kári Helgason – FH

Gylfi Þór Sigurðsson – Víkingur R.

Haukur Andri Haraldsson – ÍA

Kolbeinn Þórðarson – IFK Göteborg

Daníel Hafsteinsson – Víkingur R.

Birnir Snær Ingason – Stjarnan

Aron Sigurðarson – KR

Valdimar Þór Ingimundarson – Víkingur R.

Ágúst Orri Þorsteinsson – Breiðablik

Helgi Guðjónsson – Víkingur R.

Emil Atlason – Stjarnan

Aron Elís Þrándarson – Víkingur R.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði