fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Vill ekki segja til um hvort færslan á Instagram hafi kostað hann sekt

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 7. febrúar 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Thomas Frank, knattspyrnustjóri Tottenham, hefur hafnað því að Cristian Romero sé að leiða einhvers konar uppreisn leikmanna hjá félaginu.

Hann vildi þó lítið segja um hvort fyrirliðinn hafi verið sektaður eða skammaður vegna ummæla sinna á samfélagsmiðlum.

Rétt eftir að félagaskiptaglugganum í janúar lauk lét Romero í ljós óánægju með breidd leikmannahópsins og kallaði hana „skammarlega“. Ummælin vöktu mikla athygli og voru túlkuð af sumum sem gagnrýni á stjórn félagsins.

Á blaðamannafundi á fimmtudag var Frank ítrekað spurður út í málið. Hann svaraði því til að allt hefði verið afgreitt innan félagsins. „Allt hefur verið leyst innanhúss,“ sagði Daninn nokkrum sinnum.

Um færslu Romero sagði Frank. „Það er það skemmtilega við ritaðan texta að fólk getur lesið ýmislegt út úr honum. Enginn veit nákvæmlega hvað hann átti við nema Romero sjálfur og þeir sem hafa rætt við hann.“

Málið virðist því ekki verða rætt frekar opinberlega af hálfu Tottenham.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands