fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Alls ekki víst að Carrick verði ráðinn – Þessir koma einnig til greina

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 6. febrúar 2026 19:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Michael Carrick hefur farið af stað með látum sem bráðabirgðastjóri Manchester United, en ekkert er þó á hreinu varðandi framtíð hans, en hann var ráðinn út þessa leiktíð eftir brottrekstur Ruben Amorim.

Amorim gekk bölvanlega í starfi en Carrick hefur létt á öllu síðan hann tók við og er spilamennska United allt önnur. Hefur liðið unnið alla þrjá leikina undir hans stjórn, gegn Manchester City, Arsenal og Fulham.

BBC segir United þó ekki hafa tekið ákvörðun um að halda Carrick lengur í starfi en fram á sumar. Það komi þó til greina en fleiri nöfn eru einnig á blaði. Þar má nefna Thomas Tuchel, Mauricio Pochettino, Carlo Ancelotti og Julian Nagelsmann.

Manchester United mætir Tottenham á Old Trafford um helgina og ef góð úrslit nást þær gætu stuðningsmenn farið að kalla eftir því að Carrick fái lengri samning.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands