fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Ronaldo áfram í fýlu og heldur verkfalli sínu áfram

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 5. febrúar 2026 19:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Cristiano Ronaldo mun að öllum líkindum missa af sínum öðrum leik í röð með Al-Nassr þar sem hann heldur áfram að vera ósáttur við Sádi-arabíska fjárfestingarsjóðinn (PIF), sem á stærstu félögin í deildinni.

Ronaldo, sem er 41 árs, tók ekki þátt í 1-0 sigri Al-Nassr á Al-Riyadh á mánudag vegna gremju sinnar yfir litlum hreyfingum á félagaskiptamarkaðnum.

Óánægja hans jókst enn frekar þegar hann sá erkifjendurna í Al-Hilal, sem eru einu stigi og einu sæti ofar í deildinni, styrkja sig með kaupum á Karim Benzema sem fimmta leikmanni félagsins í janúarglugganum.

Al-Nassr var mun rólegra á markaðnum og fékk aðeins tvo nýja leikmenn. Abdullah Al-Hamdan kom frá Al-Hilal og Haydeer Abdulkareem var keyptur frá Al-Zawraa.

Þrátt fyrir að Ronaldo hafi æft með liðsfélögum sínum í vikunni verður hann ekki klár í slaginn gegn Al-Ittihad á föstudagskvöld, samkvæmt fréttum frá Fabrizio Romano. Óvissa ríkir því um hvenær portúgalska stórstjarnan snýr aftur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands