fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Hópur gyðinga í Manchester fordæma Guardiola

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 5. febrúar 2026 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnustjórinn Pep Guardiola hjá Manchester City hefur sætt gagnrýni frá fulltrúum gyðingasamfélagsins í Manchester eftir að hafa aftur tjáð sig um alþjóðleg átök og stríðið á Gasasvæðinu.

Í síðustu viku hélt Guardiola tilfinningaþrungna ræðu á styrktartónleikum í Barcelona þar sem hann lýsti stuðningi við Palestínu og ræddi þjáningar óbreyttra borgara. Hann fjallaði einnig um átök í Úkraínu og Súdan og sagði að þjáningar saklausra særi hann og knýi sig til að láta í sér heyra.

Ummælin féllu ekki í kramið hjá Jewish Representative Council of Greater Manchester & Region sem hvatti hann til að einbeita sér að knattspyrnu. Samtökin lýstu áhyggjum af því að orðræða um málið gæti haft neikvæðar afleiðingar og aukið spennu.

Í yfirlýsingu sögðu samtökin að opinberar persónur þyrftu að fara varlega í orðavali, sérstaklega í ljósi árása sem gyðingar hefðu orðið fyrir víða um heim. Þá var Guardiola gagnrýndur fyrir að hafa ekki sýnt samstöðu með gyðingasamfélaginu í kjölfar hryðjuverkaárásar á samkunduhús í Manchester í október.

Guardiola hefur áður sagt að hann tali út frá mannúðarsjónarmiðum en ekki pólitík. Manchester City hefur ekki gefið út sérstaka yfirlýsingu vegna málsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands