fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Níu ára drengur brenndist illa eftir að hafa sett vinsælt leikfang í örbylgjuofninn – Fjórða barnið á stuttum tíma

Pressan
Föstudaginn 6. febrúar 2026 06:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Níu ára piltur hlaut alvarleg brunasár þegar hann setti leikfang sem nýtur töluverðra vinsælda í örbylgjuofninn heima hjá sér. Var drengurinn að fylgja einhvers konar trendi á samfélagsmiðlum og höfðu bekkjarfélagar hans hvatt hann til að prófa.

Atvikið átti sér stað að morgni 20. janúar þegar drengurinn, Caleb Chabolla, var að gera sig klárann til að fara í skólann.

Caleb hafði eignast svokallað NeeDoh-leikfang skömmu áður, en um er að ræða tening úr þykku gúmmí- eða sílikonefni að utan með þéttu hlaupkenndu geli að innan.

Caleb brá á það ráð að setja leikfangið í örbylgjuofninn til að gera það mýkra, en ósköpin dundu yfir skömmu eftir að hann gerði það.

Móðir Calebs, Whitney Grubb, segir við tímaritið Peopole að sonur hennar hafi fengið hugmyndina eftir samtal við vin sem sagði honum frá trendinu á samfélagsmiðlum. Hún var úti í bílskúr að hita bílinn þegar hún heyrði örbylgjuofninn fara í gang og hélt að Caleb væri að hita morgunmatinn sinn.

Skyndilega heyrði hún hávært öskur en teningurinn sprakk með látum þegar Caleb opnaði örbylgjuofninn. Gelið slettist yfir hendur hans, andlit og annað augað og hlaut hann 2. stigs brunasár. Augað varð sem betur fer ekki fyrir skaða en nú, hálfum mánuði eftir atvikið, er Caleb enn að jafna sig heima hjá sér.

Leikfangið sem um ræðir hefur notið töluverðra vinsælda hjá ungu kynslóðinni undanfarin misseri en í frétt People er þess getið að á umbúðunum standi skýrt að ekki eigi að setja það í örbylgjuofn eða í fyrsti.

Paula Petersen, hjúkrunarfræðingur með sérhæfingu í brunameðferð, segir við People að Caleb sé mjög heppinn að hafa ekki hlotið verri áverka. Svo virðist vera sem þetta sé ekki einangrað tilfelli, ef marka má umfjöllun bandarískra fjölmiðla.

Sérfræðingur á brunadeildinni þar sem Caleb fékk meðferð sagði hann vera fjórða barnið sem kemur á deildina vegna þessa trends. Eitt þeirra hitaði teninginn í örbylgjuofni og stakk svo fingrinum ofan í hann með þeim afleiðingum að hann brenndist illa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Í gær

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér