fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Skoða hvort möguleiki sé á að fá Casemiro í sumar – Svakalegur launapakki hugsanleg hindrun

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 4. febrúar 2026 15:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríska MLS-liðið LA Galaxy er að kanna möguleikann á að fá miðjumanninn Casemiro til liðs við sig á frjálsri sölu í sumar. Brasilíumaðurinn hefur staðfest að hann yfirgefi Manchester United þegar samningur hans rennur út í júní.

Casemiro, sem er 33 ára, gekk til liðs við Manchester United frá Real Madrid árið 2022 fyrir um 70 milljónir punda og hefur spilað 148 leiki fyrir félagið og skorað 22 mörk. Hann hefur verið í lykilhlutverki á tímabilinu og sérstaklega blómstrað undir stjórn bráðabirgðastjórans Michael Carrick, eftir að Ruben Amorim var rekinn í janúar.

Samkvæmt Daily Mail skoðar LA Galaxy hvort félagið geti samið við Casemiro. Yrði hann einn af þeim leikmönnum sem fengju undanþágu til að þiggja hærri laun en launaþak MLS segir til um ef skiptin raungerast.

Það er þó ólíklegt að LA Galaxy ráði við launapakka sem er nálægt þeim sem Casemiro er með hjá United, eða um 375 þúsund pund. Því er kappinn einnig orðaður við Sádi-Arabíu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands