fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Jákvæð tíðindi fyrir stuðningsmenn Arsenal

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 4. febrúar 2026 12:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bukayo Saka stefnir að því að verða klár í Norður-Lundúnaslaginn gegn Tottenham síðar í mánuðinum.

Þessi stjörnuleikmaður Arsenal meiddist í upphitun fyrir 4-0 sigur liðsins gegn Leeds um síðustu helgi og tók hvorki þátt þar né í sigrinum gegn Chelsea í deildabikarnum í gær.

Meiðslin eru þó ekki talin alvarleg og vonast er til að hann verði klár þegar Arsenal heimsækir Tottenham þann 22. febrúar. Jafnvel er möguleiki á að hann snúi fyrr aftur ef endurhæfingin gengur vel.

Arsenal á fína leikjadagskrá fram að leiknum gegn Tottenham. Framundan er heimaleikur gegn Sunderland, útileikur gegn Brentford og bikarleikur gegn Wigan.

Í fjarveru Saka fær Noni Madueke tækifæri til að láta ljós sitt skína, en hann átti góðan leik gegn Leeds og skoraði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands