fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Fyrirliði Tottenham sendir væna sneið á þá sem stjórna félaginu – Keyptu ekkert í gær

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 14:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Cristian Romero, fyrirliði Tottenham, virðist hafa sent stjórn félagsins skýr skilaboð eftir að félagaskiptaglugganum lokaði. Hann kallaði það ótrúlegt og skammarleg að liðið hefði aðeins haft 11 leikfæra leikmenn í leik gegn Manchester City.

Tottenham fékk aðeins tvo nýja leikmenn í janúarglugganum, Conor Gallagher og unglinginn Souza. Engir reyndir leikmenn bættust við á lokadegi gluggans þrátt fyrir mikinn meiðslavanda. Alls eru ellefu aðalliðsmenn frá vegna meiðsla og liðið er í 14. sæti deildarinnar, níu stigum frá fallsæti.

Þá seldi félagið markahæsta leikmann síðasta tímabils, Brennan Johnson, til Crystal Palace fyrir 35 milljónir punda.

Romero, sem hefur sjálfur glímt við veikindi, spilaði í 2-0 sigri á Eintracht Frankfurt í Meistaradeildinni en fór af velli í hálfleik gegn City þar sem Dominic Solanke tryggði 2-2 jafntefli.

Á Instagram skrifaði Romero. „Ég vildi vera klár þótt mér liði ekki vel, sérstaklega þar sem við vorum aðeins 11 leikfærir, ótrúlegt en satt og skammarlegt.“

Hann lofaði þó áframhaldandi baráttu og þakkaði stuðningsmönnum fyrir stuðninginn. Ummælin hafa vakið mikla athygli meðal stuðningsmanna Spurs.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands