

Gustav Kjeldsen hefur skrifað undir tveggja ára samning við Stjörnuna.
Hann kemur til félagsins frá Vestra þar sem hann hefur leikið frá árinu 2023.
Gustav er öflugur hafsent og efnilegur leikmaður sem Stjarnan bindur miklar vonir við.
„Við bjóðum Gustav hjartanlega velkominn í Garðabæinn og treystum því að hann fái hlýjar móttökur í Stjörnutreyjunni,“ segir á vef Stjörnunnar.