fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Staðfesta kaupin á Willum frá Englandi

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 1. febrúar 2026 20:46

Mynd: KSÍ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Willum Þór Willumsson hefur skrifað unir hjá NEC Nijmegen, hann gengur til liðs við félagið frá Birmingham City. Samningur Willum gildir til sumarsins 2028 og inniheldur möguleika á eins árs framlengingu.

Willum, sem er 27 ára og fastamaður í íslenska landsliðinu, þekkir vel til í hollensku úrvalsdeildinni. Á árunum 2022 til 2024 lék hann 58 leiki fyrir Go Ahead Eagles og skoraði í þeim 15 mörk.

Frammistaða hans þar vakti athygli og skilaði honum síðar til Birmingham þar sem hann hefur spilað 41 leik í ensku B-deildinni síðasta eitt og hálft ár.

Carlos Aalbers, yfirmaður knattspyrnumála hjá NEC, sagðist ánægður með kaupin. Hann sagði Willum færa nýja vídd inn á miðjuna, þekkja deildina og geta aðlagast hratt.

Fyrir Willum er þetta tækifæri til að snúa aftur í umhverfi sem hann þekkir vel og þar sem hann hefur áður náð góðum árangri. NEC bindur vonir við að hann styrki liðið í baráttunni í hollensku deildinni á komandi tímabili.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði