fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Undirbúningur Arsenal raskaðist vegna þoku

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 31. janúar 2026 12:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Undirbúningur Arsenal fyrir útileikinn gegn Leeds um helgina hefur raskast verulega vegna slæmra veðurskilyrða.

Liðið, sem er undir stjórn Mikel Arteta, stefnir á að binda enda á þriggja leikja slaka hrinu í ensku úrvalsdeildinni þegar það sækir Leeds heim á laugardag.

Tap Arsenal gegn Manchester United, 3-2 á heimavelli síðustu helgi, setti titilvonir Lundúnaliðsins í uppnám. Á sama tíma minnkaði forskotið á toppnum þar sem Manchester City nálgaðist og munar nú aðeins fjórum stigum á liðunum í baráttunni um meistaratitilinn.

Ferðaáætlun Arsenal breyttist á síðustu stundu vegna þoku sem spáð var í Yorkshire-héraði.

Upphaflega stóð til að liðið myndi fljúga norður, en vegna aðstæðna var ákveðið að ferðast með rútu í staðinn. Þessi óvænta breyting hefur haft áhrif á undirbúning liðsins fyrir mikilvægan leikinn þar sem mikið er undir í toppbaráttu deildarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands