fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Mourinho orðaður við tvö rosaleg störf eftir magnaða viku

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 30. janúar 2026 11:30

Mourinho/ GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

José Mourinho gæti verið á leið aftur til Real Madrid eftir ótrúlegt kvöld í Meistaradeild Evrópu sem hefur vakið mikla athygli. P

ortúgalski stjórinn, sem er 63 ára, stýrði liði sínu til dramatísks sigurs gegn sínu gamla félagi þar sem úrslitin réðust á lokasekúndum leiksins.

Benfica var yfir 3-2 þegar örfáar sekúndur lifðu leiks og Real Madrid var komið niður í níu menn. Til að tryggja sér sæti í umspilinu þurfti Benfica eitt mark til viðbótar. Mourinho tók þá óvænta ákvörðun og sendi markvörðinn Anatoliy Trubin fram í aukaspyrnu. Trubin mætti boltanum af krafti eftir sendingu frá Fredrik Aursnes og skallaði hann í netið framhjá Thibaut Courtois, markverði Madrid.

Úrslitin þýða að liðin gætu mæst á ný í umspilinu.

Samkvæmt spænska miðlinum AS gæti Mourinho hins vegar snúið aftur til Madrídar í sumar, en einnig er talið mögulegt að hann taki við portúgalska landsliðinu, sem yrði hans fyrsta landsliðsstarf á ferlinum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði