fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Þetta eru líklegustu liðin til að vinna Meistaradeildina

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 30. janúar 2026 11:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu lauk á miðvikudagskvöld með heilum 18 leikjum þar sem öll 36 liðin voru í eldlínunni.

Fimm af sex enskum liðum tryggðu sér sjálfkrafa sæti í 16-liða úrslitum eftir sterka frammistöðu. Arsenal endaði í efsta sæti riðilsins, Liverpool í þriðja, Tottenham í fjórða, Chelsea í sjötta og Manchester City í áttunda sæti.

Newcastle United var eina enska liðið sem náði ekki beinu sæti áfram, en 12. sæti liðsins þýðir að það þarf að fara í umspil um sæti í 16-liða úrslitum. Dregið verður í umspilið á eftir og fyrri leikirnir fara fram 17. og 18. febrúar, en seinni leikir viku síðar.

Samkvæmt ofurtölvu Opta er Arsenal talið líklegast til að vinna keppnina í ár. Lundúnaliðið vann alla átta leiki sína í deildarhlutanum og hefur aldrei áður fagnað sigri í Meistaradeildinni, sem gerir verkefnið enn meira spennandi fyrir stuðningsmenn félagsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði