fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Lærisveinar Freys tóku síðasta lausa sætið í umspilinu – Fín úrslit Íslendinganna

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 29. janúar 2026 22:03

Mynd: Lyngby

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

18 leikjum var að ljúka í Evrópudeildinni, en lokaumferðin var öll spiluð í kvöld og því er nú ljóst hvaða lið fara í 16-liða úrslit, hvaða lið fara í umspil um að fara þangað og hvaða lið eru úr leik.

Lyon vinnur deildarkeppnina með 21 stig eftir 4-2 sigur á PAOK. Aston Villa, einnig með 21 stig, endar í öðru sæti eftir að hafa unnið 3-2 sigur á RB Salzburg í kvöld.

Brann, með Frey Alexanderson í brúnni, tekur síðasta sætið inn í umspilið þrátt fyrir 1-0 tap gegn Sturm Graz. Önnur úrslit féllu þeim í hag.

Sverrir Ingi Ingason spilaði fyrir Panathinaikos, sem fer áfram í umspilið, í 1-1 jafntefli gegn Roma. Það sama má segja um Hákon Arnar Haraldsson sem spilaði í 1-0 sigri Lille á Freiburg. Elías Rafn Ólafsson stóð þá auðvitað í rammanum í 2-0 sigri Midtjylland á Dinamo Zagreb, en liðið hafnar í þriðja sæti og flýgur beint inn í 16-liða úrslitin.

Hér að neðan er lokaniðurstaðan.

Standings provided by Sofascore
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði