fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Tottenham á meðal fjölda liða sem vilja Sterling

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 30. janúar 2026 10:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tottenham Hotspur er eitt af nokkrum félögum sem skoða nú möguleikann á að semja við Raheem Sterling sem frjálsan leikmann, samkvæmt heimildum Daily Mail Sport.

Kantmaðurinn, sem er 31 árs, yfirgaf Chelsea með gagnkvæmu samkomulagi í vikunni og er sagður tilbúinn að lækka launakröfur sínar verulega til að komast sem fyrst aftur á völlinn.

Sterling hefur ekki spilað marga leiki að undanförnu og skortur á leikæfingu gæti haft áhrif á áhuga Tottenham, sem þarf þó á sóknarmönnum að halda vegna meiðsla Richarlison og Dominic Solanke.

Þá hafa þeir Randal Kolo Muani og Mathys Tel ekki náð að heilla að undanförnu.

Talið er að það gæti tekið Sterling allt að mánuð að ná fullri leikæfingu, en hann hefur ekki byrjað leik í ensku úrvalsdeildinni í um 250 daga.

Napoli og Juventus eru einnig sögð fylgjast grannt með stöðunni, en ítalska liðið hafði áður áhuga á lánssamningi sem strandaði á háum launakostnaði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði