fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Nýjar vendingar í máli unglings sem hvarf fyrir áratug – „Jacob er fundinn“

Pressan
Fimmtudaginn 29. janúar 2026 22:00

Jacob Lyon. Mynd: Facebook.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lýst var eftir Jacob Lyon í febrúar árið 2016 en þá hafði móðir hans ekki séð hann í þrjá mánuði. Jacob var þá 19 ára gamall. Hann glímdi við geðrænar áskoranir og hafði legið inn á geðdeild mánuði áður en hann hvarf.

Jacob Lyon er frá Niceville í Florida. Árið 2022 fundust í um 15 km fjarlægð mannabein sem síðan þá hafa verið til rannsóknar hjá lögreglu í tengslum við hvarf Jacobs. Niðurstaða flókinna og langvarandi DNA-rannsókna er sú að beinin séu líkamsleifar horfna piltsins.

Í tilkynningu frá lögreglustjóra segir: „Þetta er ekki niðurstaðan sem samfélagið okkar vonaðist eftir. En ég vona að það færi fjölskyldu hans sálarró að vita að Jacob er fundinn.“

Ennfremur segir: „Tíu ár eru langur tími en Jacob er kominn heim.“ – „Jakob er aftur kominn til fjölskyldu sinnar og fjölskyldan getur lokað málinu að einhverju leyti. Vonandi eigum við eftir að fá fleiri svör.“

Dánarorsök Jacobs Lyon er ókunn en rannsókn málsins heldur áfram.

Sjá nánar á vef Metro.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu