fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Sterling riftir við Chelsea og fær væna summu í sinn vasa

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 28. janúar 2026 17:38

Raheem Sterling.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Raheem Sterling hefur yfirgefið Chelsea eftir að félagið og leikmaðurinn komust að gagnkvæmu samkomulagi um að rifta samningi hans.

Ljóst er að Chelsea þarf að greiða Sterling væna summu.

Enska landsliðsmaðurinn, sem á að baki 82 landsleiki, hefur verið frystur út úr leikmannahópi Chelsea allt tímabilið og hefur ekki leikið keppnisleik fyrir félagið síðan í maí 2024, eða í 619 daga.

Sterling, sem er 31 árs, er nú samningslaus og getur gengið til liðs við nýtt félag án kaupverðs, þó að ekki hafi verið greint frá nánari skilmálum uppgjörs við Chelsea.

Chelsea staðfesti brottför hans í yfirlýsingu þar sem sagði meðal annars: „Raheem Sterling hefur í dag yfirgefið Chelsea FC eftir gagnkvæmt samkomulag. Þar með lýkur þriggja og hálfs árs veru hans hjá félaginu, en hann kom til okkar sumarið 2022 frá Manchester City. Við þökkum Raheem fyrir framlag hans og óskum honum alls hins besta á næsta kafla ferilsins.“

Samningur Sterlings, sem nam um 325 þúsund pundum á viku, átti að renna út sumarið 2027. Fulham, Napoli og West Ham hafa sýnt honum áhuga í þessum mánuði, en hann hefur æft fjarri aðalliði Chelsea á Cobham-æfingasvæðinu.

Bayern München sýndi einnig áhuga síðasta sumar, án þess að formlegar viðræður færi af stað. Ljóst er þó að ekkert nýtt félag mun jafna þau laun sem Sterling hafði hjá Chelsea.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði