fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Nýjasta höggið í stríði Beckham-fjölskyldunnar kemur úr óvæntri átt – Sjáðu hvað þeir birtu til bróður síns

433
Þriðjudaginn 27. janúar 2026 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Romeo og Cruz Beckham virðast skjóta á eldri bróður sinn, Brooklyn, en harðar deilur milli hans og foreldra sinna, David og Victoriu, hafa verið í brennidepli undanfarna daga.

Cruz birti myndband á TikTok þar sem hann og Romeo sátu í bíl ásamt kærustum sínum, Jackie Apostel og Kim Turnbull, og sungu.

„Ímyndaðu þér að hata, á meðan við erum bara svona,“ sungu þau og margir túlka þetta sem skot á Brooklyn. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og skiptust aðdáendur í fylkingar í athugasemdum.

Deilan blossaði upp eftir að Brooklyn sakaði foreldra sína, David og Victoriu Beckham, um að hafa reynt að grafa undan sambandi hans við eiginkonu sína, Nicolu Peltz. Er hann þá einnig ósáttur við hegðun þeirra í kringum brúðkaup sitt og Peltz. Hélt hann því þá fram að bræður hans hafi lokað á sig, sem stenst enga skoðun samkvæmt þeim.

Romeo og Cruz halda því fram að Brooklyn hafi sjálfur fyrst lokað á fjölskylduna. Þeir standa þétt við bak foreldra sinna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands