fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Gengur líka betur utan vallar hjá United – Enginn músaskítur á Old Trafford lengur

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 27. janúar 2026 13:30

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er að ganga betur bæði á vellinum og í eldhúsinu hjá Manchester United.

Endurvakning liðsins, sem fylgdi glæsilegum sigri á Arsenal um helgina eftir óvæntan sigur á Manchester City undir stjórn nýs knattspyrnustjóra, Michael Carrick, kemur eftir erfiðan tveggja ára kafla. Ekki aðeins í leiknum sjálfum heldur einnig í rekstri Old Trafford.

Í desember 2024 greindi Daily Mail Sport frá því að Manchester United hefði fengið einnar stjörnu einkunn fyrir hreinlæti í matvælarekstri, sem er lægsta mögulega einkunn.

Það kom í kjölfar þess að gestum var gefið hrátt kjúklingakjöt á fyrirtækjaviðburði, sem leiddi til veikinda hjá nokkrum gestum á sýningu um öryggi, heilsu og umhverfi.

Eftirlitsaðilar kröfðust verulegra úrbóta og United vonaðist til að fá fimm stjörnu einkunnina sína endurheimta, líkt og tíðkast hjá flestum félögum í úrvalsdeildinni.

Endurúttekt leiddi þó í ljós fleiri vandamál, þar á meðal myglu í uppþvottavél, fitu sem lak niður veggi og ryðgaðar hillur í geymslu. Í stað fullkominnar einkunnar fékk félagið fjórar stjörnur og lofaði skjótum úrbótum á aðstöðunn

Hins vegar leiddi síðari úttekt, sem fór fram síðar á síðasta ári, til þess að einkunnin féll niður í tvær stjörnur eftir að músaskítur fannst á sjö svæðum innan leikvangsins. Þar á meðal var No 7 Suite-salurinn, sem er lýst á heimasíðu félagsins sem einu stílhreinasta rými Sir Bobby Charlton-stúkunnar, þar sem verð miðans byrjar á 550 pundum á mann. Þá fannst einnig mikið magn af músaskít í glæsilega Manchester Suite-salnum.

Starfsfólk félagsins á að hafa orðið slegið yfir niðurstöðunum, en samkvæmt Daily Mail hefur það síðan unnið af gríðarlegum krafti að því að bæta aðstöðuna. Sú vinna bar loks árangur fyrr í þessum mánuði þegar nýjasta úttekt skilaði Manchester United aftur fimm stjörnu einkunn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands