fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Kristall Máni skrifar undir hjá Frey – „Hef þroskast og tekið stór skref“

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 26. janúar 2026 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristall Máni Ingason er genginn í raðir Íslendingafélagsins Brann í Noregi, en þetta var staðfest í dag.

Kristall er 24 ára gamall og hefur verið á mála hjá Sönderjyske í Danmörku síðan 2023. Átti hann góðu gengi að fagna í dönsku úrvalsdeildinni fyrir áramót og tekur nú skrefið í stórlið Brann, sem er í baráttunni um að komast í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar.

Kristall hefur áður spilað í Noregi, en hann fór til Rosenborg 2022 frá Víkingi og lék þar fram að dvölinni í Danmörku.

„Síðast þegar ég spilaði í Noregi var ég mjög ungur. Nú hef ég þroskast og tekið stór skref sem leikmaður. Ég held að ég muni standa mig mjög vel í þetta skiptið,“ er haft eftir honum á heimasíðu Brann.

Freyr Alexandersson er auðvitað þjálfari Brann og með liðinu leika Sævar Atli Magnússon og Eggert Aron Guðmundsson.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði