fbpx
Laugardagur 28.febrúar 2026
433Sport

City staðfestir kaupin á Marc Guehi

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 19. janúar 2026 15:53

Marc Guehi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester City hefur staðfest kaupin á Marc Guéhi frá Crystal Palace, en enski landsliðsmaðurinn hefur skrifað undir fimm og hálfs árs samning sem bindur hann félaginu til sumarsins 2031.

Guéhi, sem er 25 ára gamall, er annar leikmaðurinn sem City fær til liðs við sig í janúarglugganum, en fyrr í mánuðinum samdi félagið einnig við kantmanninn Antoine Semenyo frá Bournemouth.

Guéhi hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn besti miðvörður ensku úrvalsdeildarinnar.

Hann kemur til Etihad-vallarins eftir fjögurra og hálfs árs dvöl hjá Crystal Palace, þar sem hann lék alls 188 leiki í öllum keppnum, skoraði 11 mörk og lagði upp átta. Þá hefur hann einnig leikið 26 landsleiki fyrir England og er orðinn fastamaður í landsliðshópnum.

„Ég er gríðarlega ánægður og stoltur af því að vera orðinn leikmaður Manchester City,“ sagði Guéhi.

„Þetta er afrakstur allrar þeirrar vinnu sem ég hef lagt á mig og ég er nú kominn í besta félag Englands með ótrúlegan leikmannahóp.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Í gær

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Í gær

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn
433Sport
Í gær

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð