fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Telja enga afslætti í boði í Vesturbænum á þessu ári – „Þeir nenna þessu bulli ekki þriðja árið í röð“

433
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 08:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sparkspekingar í Dr. Football telja að úrslit hjá KR um helgina séu áhyggjuefni og að stuðningsmenn liðsins hafi lítinn húmor fyrir slæmum töpum eftir síðustu ár.

KR hefur gengið í gegnum ólgusjó í Bestu deildinni síðustu tvö ár, fyrst undir stjórn Gregg Ryder og svo hjá Óskari Hrafni Þorvaldssyni í fyrra.

KR bjargaði sér frá falli í síðustu umferð í fyrra. Um helgina tapaði liðið 5-1 gegn Þrótti sem leikur í Lengjudeildinni.

„Þróttur unnu KR 5-1, ég geri aldrei mikið úr svona úrslitum. Ég held að KR-ingar eigi ekki mikið inni hjá stuðningsmönnum að vera að tapa svona í vetur,“ sagði Hjörvar Hafliðason í þætti sínum.

„Ég held að það sé enginn húmor fyrir þessu, frábær úrslit hjá Þrótti og gefur þeim eitthvað fyrir það sem koma skal.“

Jóhann Már Helgason tók þá til máls. „Maður sér þessi úrslit og skoðar liðin, Þróttur lítur vel út og þeir tóku Val líka. KR er í hafsenta krísu, ef mótið í sumar byrjar illa hjá KR þá verða stuðningsmenn þannig að þeir nenna þessu bulli ekki þriðja árið í röð.“

Arnar Sveinn Geirsson fyrrum varnarmaður Vals tók þá til máls. „Ég held að þolinmæðin sé ekki mikil, þú býrð ekki til stemmingu með 5-1 tapi gegn Þrótti.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmenn hafa rætt við KSÍ um mætinguna – „Þetta hefur ekki gerst að sjálfu sér“

Segir leikmenn hafa rætt við KSÍ um mætinguna – „Þetta hefur ekki gerst að sjálfu sér“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Rak upp stór augu yfir fréttum af frænda sínum Gylfa Þór – „Fór í kaffi til hans þremur dögum fyrr og þá gat hann varla gengið“

Rak upp stór augu yfir fréttum af frænda sínum Gylfa Þór – „Fór í kaffi til hans þremur dögum fyrr og þá gat hann varla gengið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fer til Tottenham ef liðið bjargar sér frá falli

Fer til Tottenham ef liðið bjargar sér frá falli
433Sport
Fyrir 2 dögum

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vilja losa sig við mann sem þeir keyptu í janúar – Er launahæsti leikmaður Tottenham

Vilja losa sig við mann sem þeir keyptu í janúar – Er launahæsti leikmaður Tottenham
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool hafnaði því að leyfa lykilmanni á skrifstofunni að fara til Sádí Arabíu

Liverpool hafnaði því að leyfa lykilmanni á skrifstofunni að fara til Sádí Arabíu