fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Þú getur breytt þessu mynstri segir Ragnhildur – „Frestunarárátta er ekki heimska“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 09:30

Ragga Nagli Mynd: Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pistlar Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðings, betur þekkt sem Ragga nagli, sem skrifaðir eru á mannamáli njóta mikilla vinsælda á Facebook-síðu hennar. Í þeim nýjasta fjallar Ragga um frestunaráráttu, sem mörg okkar kannast við.

„Af hverju frestum við verkefnum sem okkur þykja flókin eða leiðinleg fram í rauðan dauðann?“ 

Ragga telur síðan nokkur dæmi:

„Þú átt að byrja á verkefni í vinnunni. Þú ert búinn að lesa allar fréttirnar á Vísi. Skrolla alla Instagramm póstana. Horfa á öll kettlingamyndbönd á TikTok. Endurraða pennunum í skúffunni. Kvíðinn sem hríslast um hryggjarsúluna að byrja á verkefninu er á stærð við sífrerann í Síberíu.

Þú þarft að læra fyrir próf. Þú ert búin að fara í gegnum sokkaskúffuna og henda öllum einstæðingunum. Gólfið er ryksugað og þvottakarfan er tóm. En bókin liggur óopnuð á borðinu og starir á þig á meðan samviskubitið vex með hverri mínútunni.

Þú ætlar í ræktina í dag. En fyrst ætlarðu að taka úr uppþvottavélinni og fara út með ruslið. Og já… það þarf að versla… og elda og hjálpa yngsta barninu með heimavinnuna…. ég hef greinilega bara engan tíma fyrir ræktina í dag.

Augabrúnirnar eru aldrei eins vel plokkaðar eins og þegar þarf að skúra gólfin.

Þú þarft að fylla út allskonar eyðublöð en skyndilega verður mjög mikilvægt að hreinsa úr fataskápnum.“

Mynd: Ragga nagli

Hvað er frestunarárátta?

Ragga spyr svo einfaldlega: „Af hverju frestum við verkefnum sem okkur þykja flókin eða leiðinleg fram í rauðan dauðann? Af hverju verður heilinn í okkur eins og gullfiskur með átta sekúndna minnisspönn þegar við eigum að byrja á einhverju.“

Ragna segir að stundum frjósum við því taugakerfið er að vernda okkur fyrir þessum yfirþyrmandi tilfinningum að hafa ekki þekkingu eða hæfileika til að leysa verkefnið.

En hvað er frestunarárátta? Ragga svarar því:

„Frestunarárátta er ekki leti. Frestunarárátta er ekki vöntun á upplýsingum. Frestunarárátta er ekki heimska. Frestunarárátta er ekki skortur á hæfileikum.Frestunarárátta dúllar sér í möndlunni í heilanum sem er sama heilastöð sem ferlar ótta og hræðslu.

Frestunrárátta á nefnilega rætur í allskonar, bæði hræðslu, ótta og kvíða sem og lágu sjálfsmati og athyglisbresti. Hræðsla við að gera sig að fífli. Ótti við að mistakast og staðfesta þannig eigin kenningar um að vera lúser og landeyða. Hræðsla við að valda einhverjum vonbrigðum með að gera hlutina ekki nógu vel.

Finnast þú ekki hafa nægilega þekkingu til að geta byrjað á verkefninu og hugsanirnar eru allar í flækju í gráa efninu.

Fullkomnunarárátta lamar útlimina, því hræðslan við að standa ekki undir eigin kröfum eða ímynduðum kröfum náungans.“

Er frestunarárátta hjálpleg eða ekki?

Ragga segir fullkomnunaráráttu geta verið hjálplega til að gera hlutina vel.

En þegar kröfurnar verða svo háar að þær eru aðeins ínáanlegar fuglinum fljúgandi verða þær fjötur um fót.

Því við upplifum að vera mislukkuð, pirring, skömm og sektarkennd þegar við getum ekki mætt þessum kröfum. Og frestunaráráttan er olía á sjálfseyðingarbálið sem þegar er í ljósum logum í sálinni. Slíkar neikvæðar tilfinningar auka streitu og geta valdið kvíða og frestunaráráttu því við þorum ekki að takast á við verkefni nema gera það 100% vel.

Sumir fresta fram á síðustu stundu því þau þurfa adrenalínið og dópamínið flæðandi á klikkispítt um æðarnar til að smyrja blóði á tennurnar til að klára verkefnin. Ef verkefnið hefur enga persónulega þýðingu fyrir þig og þér er drull… um útkomuna, getur oft verið erfitt að keyra sig í gang.

Þegar sjálfstraustið er niðri í kjallara og trúin á sjálfan sig er í frostmarki þá tekur frestunaráráttan öll völd þegar hausinn gargar á þig að þú munir ekki geta þetta frekar en nokkuð annað. Forstjórinn í heilanum hjá ADHD fólki er oft mjög lélegur stjórnandi og hoppar úr einu verkefni í annað eins og íkorni í leit að æti. Athyglisbresturinn tekur yfir og allar truflanir eiga greiðan aðgang að framheilanum til að komast út úr þessu óþægilega ástandi að skilja ekki, vita ekki, kunna ekki.“

Ragga bendi á að þegar þú áttar þig á hvar þín frestunarárátta á sínar rætur geturðu byrjað að vinna í að breyta mynstrinu.

„Þegar þú hættir að berja þig niður fyrir að fresta hlutunum þá minnkar samviskubitið sem lamar okkur enn frekar.

Hvað tengir þú mest við fyrir þína frestunaráráttu?“

spyr Ragga í lokin á grein sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Pink sögð skilin við eiginmanninn til 20 ára og bregst reið við – „Mynduð þið vilja segja börnunum okkar frá þessu?

Pink sögð skilin við eiginmanninn til 20 ára og bregst reið við – „Mynduð þið vilja segja börnunum okkar frá þessu?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Dómari skipaði leikaranum að fara í meðferð eftir nýjasta uppátæki hans

Dómari skipaði leikaranum að fara í meðferð eftir nýjasta uppátæki hans
Fókus
Fyrir 3 dögum

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli
Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins
Fókus
Fyrir 5 dögum

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár