
Það er farið að síga á seinni hlutann í leik Newcastle og Manchester City. Leiða gestirnir 0-1 en forystan gæti verið stærri.
Um er að ræða fyrri leik liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins. Antoine Semenyo, nýjasti leikmaður City, kom þeim yfir og hélt hann að hann hefði tvöfaldað forskotið skömmu síðar.

Það mark var hins vegar dæmt af eftir margra mínútna skoðun í VAR og að lokum athugun dómara, Chris Kavanagh, sem fór í skjáinn.
Erling Braut Haaland var úrskurðaður rangstæður í aðdragandanum og litið svo á að þetta hafi haft áhrif.
Það er ansi erfitt að sjá að þetta sé réttur dómur og netverjar eru vægast sagt brjálaðir. „Leikurinn er ónýtur (e. game’s gone)“ er notað ansi mikið í umræðu knattspyrnuáhugamanna um atvikið um þessar mundir.
Dæmi hver fyrir sig. Atvikið má sjá hér.