fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Talibanar sleppa eldri breskum hjónum – Eiginmaðurinn var hlekkjaður og barinn

Ritstjórn DV
Föstudaginn 19. september 2025 11:25

Peter og Barbie Reynolds. Youtube-skjáskot

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breskum hjónum á áttræðisaldri, þeim Barbie og Peter Reynolds, hefur verið sleppt úr haldi Talibanastjórnarinnar í Afganistan eftir að hafa setið í öryggisfangelsi síðan í febrúar, án ákæru.

Hjónin hafa búið í Afganistan í tvo áratugi og hafa rekið þar skóla fyrir ungmenni. Þau voru handtekin á grundvelli banns Talibana við menntun kvenna. Þó munu þau hafa haft tilskilin leyfi til námskeiðahalds síns.

Peter Reynolds er áttræður en eiginkona hans, Barbie, er 76 ára. Samkvæmt heimildum Metro var Peter hlekkjaður og barinn í fangelsinu og Barbie fékk aðeins eina máltíð á dag.

Hjónunum var sleppt á fyrir milligöngu stjórnvalda í Katar og var flogið frá  Kabúl í Afganistan til Doha, höfuðborgar Katar. Þau segjast í viðtali við Skynews vera mjög þakklát fyrir frelsunina og vilja helst snúa aftur til Afganistan til að halda skólastarfi sínu áfram.

Sjá nánar á vef Skynews

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum