fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
433Sport

Brighton fjárfestir í byltingarkenndri tækni – Leikmenn með hátalara á bakinu á æfingum

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 26. ágúst 2025 09:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fabian Hürzeler, stjóri Brighton, hefur nú möguleika á að tala beint í eyrun á leikmönnum sínum á æfingum eftir að félagið fjárfesti í byltingarkenndri þýskri tækni sem Julian Draxler, fyrrverandi landsliðsmaður Þýskalands er fjárfestir í.

Brighton hefur keypt samskiptabúnað að verðmæti um 35 þúsund pund sem þeir telja geta breytt verulega gæðum æfinga og undirbúningi.

Um er að ræða kerfi sem kallast Coachwhisperer, og Brighton er talið fyrsta enska liðið til að nota búnaðinn í æfingum þó hann hafi einnig verið kynntur fyrir félögum eins og Aston Villa og Liverpool á undanförnum mánuðum.

Leikmenn klæðast vestum með lítilli tösku á bakinu þar sem lítið hátalarakerfi er falið. Þjálfarar tala í hljóðnema og þurfa því ekki lengur að hrópa leiðbeiningar yfir allan völlinn. Kerfið miðar að því að minnka misskilning og bæta nákvæmni í samskiptum.

Hürzeler getur einnig valið í gegnum app hvaða leikmenn eða leikmannahópa hann vill tala við hverju sinni, hann getur þannig aðeins valið varnarmenn til að ræða við.

Hinn framsækni 32 ára stjóri hefur enn fremur aðgang að sjálfvirkri þýðingarþjónustu, þannig að leikmenn fá skilaboðin á sínu móðurmáli ef þess þarf. Þetta gæti hjálpað til við að brúa tungumálaörðugleika innan liðsins.

Coachwhisperer, sem er þýskt fyrirtæki, býður einnig upp á greiningu á hegðun og samskiptastíl þjálfara með upptökum af æfingum. Samskiptin eru flokkuð í fimm flokka: skipulag, taktík, leiðréttingar/gagnrýni, hvatning og tæknilegar leiðbeiningar. Þannig fá þjálfarar innsýn í hvernig þeir koma fram.

Julian Draxler, nú leikmaður Al-Ahli í Katar, fjárfesti í verkefninu fyrir tveimur árum. „Þetta sparar dýrmætan tíma og hámarkar árangur inni á vellinum,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Tottenham og Úlfarnir á eftir sama leikmanninum

Tottenham og Úlfarnir á eftir sama leikmanninum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Xavi segir ástæðuna fyrir því að Messi sneri ekki aftur afar einfalda

Xavi segir ástæðuna fyrir því að Messi sneri ekki aftur afar einfalda
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Fær harkalega á baukinn fyrir brot sitt á Hlíðarenda um helgina – Sjáðu myndbandið

Fær harkalega á baukinn fyrir brot sitt á Hlíðarenda um helgina – Sjáðu myndbandið
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Benedikt ósáttur við framkomu Garðbæinga – „Erum ekki að fara að henda fjórum milljónum í þetta“

Benedikt ósáttur við framkomu Garðbæinga – „Erum ekki að fara að henda fjórum milljónum í þetta“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Stígur sjálfur til hliðar vegna rannsóknar – Gæti átt yfir höfði sér sex ára fangelsi

Stígur sjálfur til hliðar vegna rannsóknar – Gæti átt yfir höfði sér sex ára fangelsi
433Sport
Í gær

Ofurtölvan stokkar spilin eftir helgina – Arsenal meistari eftir allt saman en önnur Lundúnalið í miklu brasi

Ofurtölvan stokkar spilin eftir helgina – Arsenal meistari eftir allt saman en önnur Lundúnalið í miklu brasi
433Sport
Í gær

Myndband úr leik í barnaflokki í mikilli dreifingu – Var maðkur í mysunni?

Myndband úr leik í barnaflokki í mikilli dreifingu – Var maðkur í mysunni?