fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
433Sport

Henderson brast í grát þegar hann mætti fyrir utan Anfield til að votta Jota virðingu sína

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 4. júlí 2025 13:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jordan Henderson fyrrum fyrirliði Liverpool var mættur fyrir utan Anfield í dag til að votta Diogo Jota virðingu sína, framherji Liverpool lét lífið í gær.

Henderson lék með Jota í nokkur ár en hann er í dag leikmaður Ajax í Hollandi.

Henderson mætti með blóm og Liverpool fána fyrir utan Anfield til að votta Jota og fjölskyldu hans virðingu sína. Henderson brast í grát þegar hann stóð og vottaði Diogo virðingu sína.

Getty Images

Útför Jota og bróðir hans Andre hefst í dagk klukkan 16:00. Útförin fer fram í Gondomar sem bær nálægt Porto í Portúgal.

Athöfnin hefst í dag með bænastund og sjálf útförin fer svo fram klukkan 10:00 í fyrramálið.

Athygli vekur að athöfnin hefst aðeins rúmum sólarhringi eftir að Jota og bróðir hans Andre létust í hræðilegu bílslysi.

Getty Images

Jota var á leið í ferju til Englands þegar dekk sprakk á bíl hans með þeim hræðilegu afleiðingum að hann og bróðir hans létu lífið.

Jota keyrði Lamborghini bíl sinn og ætlaði að taka ferjuna frá Santander á Spáni yfir til Englands.

Getty Images
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Snýr aftur eftir tveggja ára bann frá fótbolta

Snýr aftur eftir tveggja ára bann frá fótbolta
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Rob Holding aftur á meðal Íslendinga í stúkunni um helgina – Hann og Sveindís ræða aldrei um fótbolta

Rob Holding aftur á meðal Íslendinga í stúkunni um helgina – Hann og Sveindís ræða aldrei um fótbolta
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Fór frá Arsenal í fyrradag og var í dag ákærður fyrir fimm nauðganir og fleira til

Fór frá Arsenal í fyrradag og var í dag ákærður fyrir fimm nauðganir og fleira til
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Eigandinn veður í Þorstein Halldórsson og KSÍ – „Í þeirri veiku von að tapa ekki of miklum peningum“

Eigandinn veður í Þorstein Halldórsson og KSÍ – „Í þeirri veiku von að tapa ekki of miklum peningum“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Maðurinn sem hitti Diogo Jota síðast á lífi tjáir sig – „Ég hef lesið hluti á netinu sem eru tóm þvæla“

Maðurinn sem hitti Diogo Jota síðast á lífi tjáir sig – „Ég hef lesið hluti á netinu sem eru tóm þvæla“
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Þrír íslenskir knattspyrnumenn heiðruðu minningu Jota í gær – Sjáðu myndböndin

Þrír íslenskir knattspyrnumenn heiðruðu minningu Jota í gær – Sjáðu myndböndin
433Sport
Í gær

Byrjuð að þéna meira en eiginmaðurinn í fyrsta sinn í hjónabandinu

Byrjuð að þéna meira en eiginmaðurinn í fyrsta sinn í hjónabandinu
433Sport
Í gær

Besta deildin: Stokke tryggði stig gegn Blikum

Besta deildin: Stokke tryggði stig gegn Blikum