fbpx
Sunnudagur 22.júní 2025
Pressan

Læknir segir að þessar fimm einföldu daglegu venjur geti minnkað líkurnar á hjartaáfalli

Pressan
Sunnudaginn 22. júní 2025 15:00

Hjartaáfall er ekkert grín. Mynd: Getty.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjartasjúkdómar eru ein algengasta dánarorsökin á heimsvísu en góðu fréttirnar eru að það er hægt að hafa áhrif á marga áhættuþætti tengda hjartasjúkdómum. Með því að temja sér hollari daglegar venjur er hægt að draga mikið úr hættunni á að fá hjartaáfall og bæta heilbrigði hjartans til langs tíma.

Jack Wolfson, læknir, deilir oft góðum ráðum varðandi heilsufar með fylgjendum sínum á Instagram. Í nýlegri færslu benti hann á fimm einfaldar og áhrifaríkar aðgerðir sem geta hjálpað til við að vernda hjartað.

Farðu út í náttúruna – Wolfson segir að þeim mun meiri tíma sem þú eyðir utanhúss, þeim mun minni séu líkurnar á að fá hjartaáfall. Ferskt loft, náttúrulegt birta og hreyfing hafa mikil áhrif á bæði hjartað og almennt heilsufar.

Betri svefn – „Óháð því hvenær þú ferð venjulega í háttinn, reyndu að fara klukkutíma fyrr í rúmið,“ sagði hann og benti á að góður svefn veiti hjartanu nauðsynlega hvíld og styðji við endurhleðslu líkamans og hormónajafnvægið.

Dragðu úr skjánotkun – Hann hvetur fólk til að draga úr skjánotkun. Styttir skjátími geti þýtt betri svefn, minna stress og meiri tíma til að gera eitthvað heilsusamlegt.

Vertu berfætt(ur) úti – Hann segir að ef fólk sé berfætt úti við, nái það jarðtengingu sem sé góð fyrir hjartað. Þetta er einnig talið draga úr bólgum og bæta blóðflæðið.

Æfðu þig í að vera þakklát(ur) – Hann segir að það að vera þakklát(ur) geti dregið úr stressi, bætt skapið og gert hjartað heilbrigðara með því að minnka magn stresshormónsins kortísól í líkamanum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sydney Sweeney er byrjuð að selja baðvatnið sitt

Sydney Sweeney er byrjuð að selja baðvatnið sitt
Pressan
Í gær

Rafmyntafjölskylda grípur til aðgerða í kjölfar mannrána

Rafmyntafjölskylda grípur til aðgerða í kjölfar mannrána
Pressan
Fyrir 2 dögum

59 ára amma var klóruð af flækingshundi – Lést á voveiflegan hátt fjórum mánuðum síðar

59 ára amma var klóruð af flækingshundi – Lést á voveiflegan hátt fjórum mánuðum síðar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Stofnandi Telegram segir að auðæfi hans muni renna til 106 barna hans

Stofnandi Telegram segir að auðæfi hans muni renna til 106 barna hans
Pressan
Fyrir 3 dögum

Saka FOX-fréttastofuna um áróður og vara við alvarlegum afleiðingum blandi Bandaríkin sér í átök Ísrael og Írans

Saka FOX-fréttastofuna um áróður og vara við alvarlegum afleiðingum blandi Bandaríkin sér í átök Ísrael og Írans
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hóta að ráða valdamesta mann Írans af dögum – „Slíkur maður má ekki lengur fá að lifa“

Hóta að ráða valdamesta mann Írans af dögum – „Slíkur maður má ekki lengur fá að lifa“