fbpx
Laugardagur 14.júní 2025
Fréttir

Ómar hafði ekki erindi sem erfiði – Áminning vegna skammarpósta til dómara stendur

Ritstjórn DV
Föstudaginn 13. júní 2025 12:30

Ómar R. Valdimarsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af kröfum Ómars Valdimarssonar lögmanns sem krafðist þess að úrskurður úrskurðarnefndar lögmanna þar sem hann var áminntur, fyrir meðal annars að senda dómara máls sem hann kom að tölvupóst með spurningu um hvaða starfsmann á lögmannsstofu sinni hann ætti að reka, yrði felldur úr gildi. Var Ómar einnig áminntur fyrir tvo aðra tölvupósta og fyrir að mæta ekki í þinghald.

Allir dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur viku sæti í málinu og það var falið dómara við Héraðsdóm Reykjaness.

Úrskurðurinn snýst um dómsmál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, sem varðar hið svokallaða Bankastrætis-Club mál, þar sem Ómar var ósáttur við þau málsvarnarlaun sem honum voru úrskurðuð og þótti honum þau allt of lág miðað við hversu mikla vinnu hann hefði lagt í málið. Taldi Ómar að honum bæri að fá um 17,9 milljónir króna, með virðisaukaskatti. Vildi hann meina að hann hefði samkvæmt úrskurði dómarans í raun þurft að bera 2/3 af kostnaðinum við málið sjálfur.

Sama dag og dómurinn var kveðinn upp sendi Ómar dómaranum í málinu póst þar sem hann spurði meðal annars hvaða starfsmann á lögmannsstofu sinni hann ætti að reka.

Ómar áminntur af úrskurðarnefnd lögmanna – Spurði dómara hvaða starfsmann hann ætti að reka

Vildi Ómar meina að hann ekki ætlast til að fá efnislegt svar frá dómaranum og að fleiri lögmenn sem komu að málinu hafi gert athugasemdir við ákvörðun dómarans um málsvarnarlaun. Ómar sendi tölvupóst til annarra lögmanna í málinu til að kanna hvort þeir væru til í að leggja fram sameiginlega kvörtun og yfirlýsingu um að þeir myndu ekki flytja fleiri mál hjá dómaranum, em ekkert varð af því.

Nokkrum dögum eftir að dómur var kveðinn upp í málinu mætti Ómar ekki í boðað þinghald um þar sem taka átti fyrir kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald á hendur umbjóðanda hans. Hann mætti þó um síðir og lét bóka í þingbók að hann hefði boðað forföll þegar hann var boðaður í þinghaldið tveimur dögum áður, á laugardegi. Vísaði þá Ómar til tölvupósts sem hann sendi dómaranum þar sem hann sagði að liggja yrði fyrir að dómarinn teldi störf hans í þessum hluta málsins ekki vera ólaunaða þegnskylduvinnu og að hann myndi senda annan lögmann sem fulltrúa, en sá lögmaður mætti ekki.

Í kjölfarið sendi dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur formlega kvörtun yfir hegðun Ómars, hvað varðar þessa tölvupósta og framgöngu hans í þinghaldinu um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir umbjóðanda hans, til úrskurðarnefndar lögmanna. Áminnti nefndin hann í öllum tilfellum.

Í málarekstrinum til að fá úrskurðinum hnekkt vísaði Ómar til þess að að hann væri brot gegn meginreglum í viðmiðunarstaðli um réttaröryggi sem kveði á um að lögmenn eigi að fá að starfa án ógnana og hindrana. Slíkt gæti grafið undan réttaröryggi borgaranna. Ómar vildi sömuleiðis meina að Héraðsdómur Reykjavíkur gæti ekki átt aðild að kvörtun til úrskurðarnefndar lögmanna og að dómstjóri gæti ekki komið fram fyrir hönd dómsins. Sagði Ómar að dómarinn sem hann sendi póstana tvo, sem voru meðal þess sem hann var áminntur fyrir, hafi ekki kannast við að eiga nokkra aðild að kvörtuninni. Taldi Ómar að nefndin hefði átt að vísa málinu frá.

Ómar gerði ýmsar aðrar athugasemdir við málið en hann stóð fast á því að fyrri pósturinn til dómarans, þar sem hann spurði hvaða starfsmenn af lögmannsstofu sinni ætti að reka, hefði átt fyllilega rétt á sér þar sem dómarinn hafi vegið að störfum hans með því að úrskurða honum svo lág málsvarnarlaun.

Héraðsdómur sé persóna

Í andsvörum lögmanns ríkisins kom meðal annars fram að ólíkt því sem Ómar héldi áfram gæti Héraðsdómur Reykjavíkur átt aðild að máli fyrir úrskurðarnefnd lögmanna þar sem dómurinn sé persóna að lögum og geti sem slíkt átt réttindi og borið skyldur. Dómstjórinn geti komið fram fyrir hönd héraðsdóms sem hafi átt hagsmuna að gæta í málinu sem hafi snúist um brot Ómars á siðareglum lögmanna. Ríkið tók undir það með Ómari að dómstólar séu ekki hafnir yfir gagnrýni en gera verði þá kröfu til lögmanna að þeir setji slíka gagnrýni fram með málefnalegum hætti og af kurteisi og virðingu. Gerði lögmaður ríksins síðan margvíslegar aðrar athugasemdir við framgöngu Ómars.

Í niðurstöðu héraðsdóms er tekið undir með ríkinu að samkvæmt lögum geti dómstóll átt aðild að máli fyrir úrskurðarnefnd lögmanna. Dómurinn telur einnig ljóst að miðað við það hlutverk sem dómstjóra sé falið samkvæmt lögum geti hann komið fram fyrir viðkomandi dómstóls.

Dómurinn segir að það hafi ekki verið hæfi að Ómar hafi sent dómaranum tölvupóst eftir að dómur var kveðinn upp með spurningu um hvaða starfsmann hann ætti að reka og tekur undir það með úrskurðarnefnd lögmanna að hann hafi verðskuldað áminningu fyrir það. Ómar hafi heldur ekki sýnt fulla tillitssemi og virðingu í seinni tölvupóstinum til dómarans, sem eins og áður segir snerist um þinghald vegna kröfu um gæsluvarðhald yfir umbjóðanda hans. Báðir póstarnir hafi brotið gegn siðareglum lögmanna og Ómar hafi verðskuldað áminningu fyrir þá. Sömuleiðis hafi hann brotið gegn siðareglunum með því að mæta ekki í þinghaldið. Tók dómurinn ekki undir það með Ómari að skilja mætti svar hans við boðuninni í þinghaldið sem tilkynningu um forföll. Er það sömuleiðis niðurstaða héraðsdóms að með tölvupóstinum til lögmannanna þar sem hann reyndi að fá þá til að lýsa því yfir að þeir myndu ekki flytja fleiri mál hjá dómaranum hafi Ómar reynt að hindra starfsemi Héraðsdóms Reykjavíkur.

Héraðsdómur hefur því úrskurðað að allar áminningarnar sem Ómar hlaut hjá úrskurðarnefnd lögmanna skuli standa óhaggaðar.

 

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Írönsku valdamennirnir lágu sumir í rúmum sínum þegar þeir voru sprengdir í loft upp

Írönsku valdamennirnir lágu sumir í rúmum sínum þegar þeir voru sprengdir í loft upp
Fréttir
Í gær

Flugstjórinn hokinn af reynslu og ætlaði að setjast í helgan stein á næstu mánuðum

Flugstjórinn hokinn af reynslu og ætlaði að setjast í helgan stein á næstu mánuðum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðmundur Karl Snæbjörnsson sviptur lækningaleyfi

Guðmundur Karl Snæbjörnsson sviptur lækningaleyfi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Skúli og stjórn WOW air sýknuð af 18,5 milljón evra skaðabótakröfu fjárfesta

Skúli og stjórn WOW air sýknuð af 18,5 milljón evra skaðabótakröfu fjárfesta