fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Ísland endar riðlakeppnina án sigurs eftir tap gegn Frökkum

Victor Pálsson
Þriðjudaginn 3. júní 2025 19:53

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska kvennalandsliðið tapaði gegn Frökkum í A deild Þjóðadeildarinnar í kvöld en spilað var á Laugardalsvelli.

Frakkar eru með eitt besta landslið heims og kláruðu riðilinn með fullt hús stiga eða 18 stig úr sex leikjum.

Ísland gerði sitt besta í þessum leik en þurfti að lokum að sætta sig við tap og endar riðlakeppnina án sigurs og í þriðja sæti.

Stelpurnar okkar gerðu heim fjögur jafntefli og töpuðu þá tveimur en bæði töpin voru gegn einmitt Frökkum.

Noregur endar í öðru sæti riðilsins með átta stig en í neðsta sæti er Sviss sem er með tvö stig eftir einnig sex leiki.

Sandy Baltimore og Grace Geyoro skoruðu mörkin í seinni hálfleik og tryggðu Frökkum sigurinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands