fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Bruno ýtir undir sögusagnir um Sádí Arabíu – Fór út að borða með manni um helgina sem vekur athygli

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 2. júní 2025 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bruno Fernandes fyrirliði Manchester United er sterklega orðaður við Al-Hilal í Sádí Arabíu og hefur umboðsmaður hans fundað með félaginu.

Sádarnir vilja kaupa Bruno og gera hann að einum launahæsta leikmanni í heimi.

Bruno þarf að taka ákvörðun í vikunni en Al-Hilal vill fá Bruno með á HM félagsliða sem hefst um miðjan júní.

Bruno fór í gleðskap um helgina þar sem hann sást sitja með Joao Cancelo bakverði Al-Hilal og hefur það ýtt undir sögusagnir.

Cancelo er samlandi Bruno og var hann að fagna afmæli sínu þar sem Bruno mætti og gerði sér glaðan dag.

Það er talið nokkuð öruggt að þeir hafi rætt um lífið í Sádí Arabíu en Bruno þarf að svara Al-Hilal fyrir föstudag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands