fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fréttir

Fékk himinháa rukkun fyrir smábeyglu á bílaleigubíl – „Myndi ekki kalla þetta svindl en þetta er mjög ósanngjarnt“

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 21. maí 2025 18:00

Skemmdin er varla sjáanleg. Skjáskot/Reddit

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ferðamaður sem leigði bíl er ósáttur við himinháa rukkun sem hann fékk vegna skemmdar sem varla sést. Telja sumir að bílaleigan muni jafn vel ekki láta laga skemmdina þrátt fyrir borgun.

Erlendur ferðamaður er miður sín eftir að hafa fengið rukkun upp á 300 þúsund krónur fyrir örlitla skemmd sem fannst á hægri framhurð camper bílaleigubíls.

„Þessi litla beygla er varla sýnileg. Getið þið heimamenn sagt mér hvað það kostar að laga þetta á Íslandi?“ spyr hann í færslu á samfélagsmiðlinum Reddit og birtir mynd af framhurðinni umræddu.

Hægt að fá skýrslu

Bent er á að viðkomandi beygla orsakast af vindi. Það er að hurðin hafi skellst aftur í hviðu. Þetta eru atvik sem séu ekki tryggð hjá bílaleigum.

„Svona skemmdir eru sérstakt fyrirbrigði í bílaleigubransanum á Íslandi þannig að þetta er ekki einstakt í þínu tilfelli. Ég myndi ekki kalla þetta svindl en þetta er mjög ósanngjarnt,“ segir einn netverji.

Bendir hann að hægt sé að biðja um skýrslu sem sýnir heildarkostnaðinn við viðgerðina, það er svokallaða CABAS skýrslu.

„Hins vegar ef þú færð þessa skýrslu þá þýðir það ekki endilega að bílaleigan muni í raun láta framkvæma viðgerðina,“ segir hann. „Þeir geta haldið áfram að leigja út bílinn og taka þennan 300 þúsund kall upp í minnkað virði þegar þeir selja hann.“

Sumir benda hins vegar á að um sé að ræða skemmd í hurð sem þýði að hugsanlega sjáist ekki allt saman. Það er að það gæti verið skemmdir innan í hurðinni.

Verksmiðju ástand

Einn viðgerðarmaður hjá bílaleigu leggur orð í belg. Bendir hann á að CABAS skýrslan sýni hvað það kosti að koma bíl aftur í „verksmiðju ástand.“

„Í flestum tilfellum er hægt að laga hluti á miklu ódýrari hátt en gert er en þegar kemur að endursölu þá myndi bílaleigan á endanum tapa peningum af því bíllinn er ekki í verksmiðju ástandi,“ segir hann.

Vinnan dýr

Fleiri eru hins vegar sammála um að rukkunin sé mjög há. En að Ísland sé mjög dýrt land. „Ég hef fengið smáskemmdir á bílhurðir í nokkur skipti og  300 þúsund til að laga þetta virðist ekki vera út úr korti því miður,“ segir einn. „Vinnan er mjög dýr á Íslandi. Við erum velferðarríki. Því miður,“ segir annar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Halldór Blöndal er látinn

Halldór Blöndal er látinn
Fréttir
Í gær

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“
Fréttir
Í gær

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“
Fréttir
Í gær

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast