fbpx
Laugardagur 17.maí 2025
Pressan

Ótrúleg aðgerð Trump – Vill að innflytjendur geri þetta sjálfir

Pressan
Föstudaginn 16. maí 2025 06:30

Trump dettur ýmislegt í hug.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef þú ert ólöglegur innflytjandi í Bandaríkjunum, þá hefur ríkisstjórn Donald Trump nú opnað fyrir möguleikann á að þú getir farið á hvaða flugvöll sem er, keypt flugmiða úr landi og fengið reiðufé í hendurnar. Eina skilyrðið er að þú komir þér úr landi.

Þetta á að gera ólöglegum innflytjendum auðvelt fyrir við að yfirgefa Bandaríkin og hefur Trump gefið þessu verkefni heitið „Project homecoming“.

Hann skýrði frá þessu í myndbandi sem hann birti á samfélagsmiðlum.

Hann hefur nú þegar gefið út forsetatilskipun um þetta en hún gengur í sjálfu sér bara út á að koma ólöglegum innflytjendum úr landi. Er þeim því boðið upp á ókeypis flugfar og reiðufé við brottförina.

Sérfræðingar telja að ástæðan fyrir þessari nálgun Trump sé að þetta sé miklu ódýrari lausn en að þurfa að finna ólöglegu innflytjendurna og senda þá úr landi. Það er til dæmis gríðarlega dýrt að byggja upp kerfi sem getur flutt eins marga ólöglega innflytjendur úr landi og Trump hefur lofað að gera.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Byrjaði að fá hrollvekjandi símtöl eftir að dóttir hennar hvarf

Byrjaði að fá hrollvekjandi símtöl eftir að dóttir hennar hvarf
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fengu áfall þegar þau sneru heim úr þriggja vikna fríi og sáu manninn sem sat í sófanum

Fengu áfall þegar þau sneru heim úr þriggja vikna fríi og sáu manninn sem sat í sófanum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Andlát ungs barns í tengslum við trúarlega föstu veldur mikilli reiði

Andlát ungs barns í tengslum við trúarlega föstu veldur mikilli reiði
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump bregst enn og aftur illa við spurningu frá blaðamanni – „Þú ættir að skammast þín“

Trump bregst enn og aftur illa við spurningu frá blaðamanni – „Þú ættir að skammast þín“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump hefur lokað dyrunum fyrir flóttafólki – En hann gerir undantekningu fyrir þennan hóp hvíts fólks

Trump hefur lokað dyrunum fyrir flóttafólki – En hann gerir undantekningu fyrir þennan hóp hvíts fólks