

„Við þurftum á þessum sigri að halda til þess að halda okkur inní þessu og bara heilt yfir þá var þetta bara mjög góður leikur hjá FH,“ sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH eftir 2-1 sigur liðsins gegn Val í kvöld.
Steven Lennon kom FH yfir í upphafi síðari hálfleiks áður en Patrick Pedersen jafnaði metin fyrir Val, tveimur mínútum síðar.
Kristján Flóki Finnbogason skoraði svo sigurmark FH á 57 mínútu og munar nú einungis sex stigum á liðunum þegar átta umferðir eru eftir.
„Við þurftum bara að skerpa aðeins á tveimur til þremur hlutum í síðari hálfleik og mér fannst við gera það vel. Þeir voru að verjast vel allan fyrri hálfleikinn og það er oft erfitt að brjóta þannig varnir niður.“
„Það tekur tíma að koma mönnum inn í skipulagið okkar og það er búið að vera mikið af leikjum og lítið af æfingum og það tekur sinn tíma.“
Viðtalið í heild sinni má sjá hér fyrir ofan og neðan.