

Álvaro Arbeloa, bráðabirgðastjóri Real Madrid, svaraði á léttan hátt spurningu um Kylian Mbappé og meintan stuðning hans við José Mourinho.
Arbeloa hefur stýrt liðinu eftir brottrekstur Xabi Alonso en tímabilið hefur gengið illa og útlit fyrir að Real Madrid vinni engan titil. Talið er ólíklegt að Arbeloa fái starfið til frambúðar og Mourinho hefur verið orðaður við stjórastöðuna á Santiago Bernabéu.
Umræðan kviknaði eftir að Mbappé virtist „líka“ færslu á samfélagsmiðlum sem tengdi Mourinho við félagið. Þegar Arbeloa var spurður út í málið svaraði hann á gamansaman hátt. „Mér er alveg sama hvort Mbappé líkar við Mourinho, Julia Roberts eða einhvern annan!“

Færslan sem vakti athygli sýndi myndir frá fyrri tíma Mourinho hjá Real Madrid, ásamt samsettri mynd af Mbappé og liðsfélaga hans.
Málið hefur vakið athygli en virðist ekki hafa mikil áhrif á stöðu mála innan félagsins.