

AFC Bournemouth og Leeds United skildu jöfn, 2-2, í dramatískum leik í ensku úrvalsdeildinni.
Eftir markalausan fyrri hálfleik kom J. Kroupi Bournemouth yfir á 60. mínútu. Leeds jafnaði þó metin með sjálfsmarki skömmu síðar, áður en Rayan kom heimamönnum aftur yfir á 85. mínútu og virtist tryggja sigurinn.
Gestirnir gáfust hins vegar ekki upp og í uppbótartíma jafnaði Sean Longstaff með marki á 97. mínútu.
Leikurinn endaði því með jafntefli eftir æsispennandi lokamínútur.Í hinum leik dagsins hafði Manchester City betur gegn Burnley, 1-0. Erling Haaland skoraði eina mark leiksins strax á 5. mínútu.
City stýrði leiknum að mestu og hélt forystunni örugglega út leikinn. Með sigrinum fer City á topp deildarinnar með 70 stig líkt og Arsenal, City er með fleiri skoruð mörk en bæði lið eru með 37 mörk í plús. Fimm umferðir eru eftir í deildinni og gríðarleg spenna næstu vikurnar.
Eftir tapið er Burnley fallið úr deildinni.