fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
433Sport

Meiðslakrísa Arsenal virðist vera að versna

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 21:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal hefur orðið fyrir enn einu áfallinu vegna meiðsla eftir að Noni Madueke meiddist í leik gegn Sporting CP í Meistaradeild Evrópu.

Madueke lenti í harkalegu samstuði við Pedro Gonçalves í síðari leik liðanna í átta liða úrslitum. Hann lá eftir í kjölfarið og varð ljóst að hann gæti ekki haldið leik áfram. Kantmaðurinn fór af velli um miðjan síðari hálfleik og hélt síðan inn í klefa til frekari skoðunar.

Arsenal gerði markalaust jafntefli í leiknum en fór áfram í einvíginu 1-0 samanlagt.

Óljóst er hvers eðlis meiðslin eru, en talið er að höggið hafi lent á miðjum bol hans. Þetta er ekki í fyrsta sinn á stuttum tíma sem Madueke meiðist, en hann þurfti einnig að fara af velli í landsleik með Englandi nýverið eftir árekstur.

Ungstirnið Max Dowman kom inn á í stað Madueke og gæti fengið stærra hlutverk ef meiðslin reynast alvarleg.

Fjarvera hans myndi bæta við meiðslavandræði Arsenal, en Bukayo Saka, Martin Odegaard, Jurrien Timber og Riccardo Calafiori eru einnig frá vegna meiðsla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Sakar Jamie Carragher um vanvirðingu – Ætlar að kveðja á góðum nótum

Sakar Jamie Carragher um vanvirðingu – Ætlar að kveðja á góðum nótum
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Konurnar taka við af körlunum um helgina

Konurnar taka við af körlunum um helgina
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Arnar Gunnlaugs útskýrir valið á Ögmundi – Aron Sig var ekki í huga Arnars fyrir leikinn gegn Argentínu

Arnar Gunnlaugs útskýrir valið á Ögmundi – Aron Sig var ekki í huga Arnars fyrir leikinn gegn Argentínu
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Þetta er fyrsti maðurinn sem Mourinho vill kaupa til Real Madrid

Þetta er fyrsti maðurinn sem Mourinho vill kaupa til Real Madrid