fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Bjarni gefur ekkert fyrir þessar afsakanir – „Það er ekkert vit í því“

433
Mánudaginn 13. apríl 2026 12:30

© 365 ehf / Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarni Guðjónsson, knattspyrnugoðsögn og sérfræðingur í Stúkunni á Sýn Sport, gefur lítið fyrir afsakanir Valsara eftir dapurt gengi undanfarið.

Valur tapaði 4-2 gegn KR í bikarnum í síðustu viku og 1-2 gegn nýliðum Þórs í fyrsta leik í Bestu deildinni í gær. Í Stúkunni í gær var komið inn á að Hermann Hreiðarsson, nýr þjálfari Vals, hafi talað um það eftir leikinn við KR að undirbúningstímabilið hafi verið erfitt vegna meiðsla og fleiri þátta.

„Það er búið að vera bras á þeim. Það var bras á þeim í bikarnum, mikið bras. Eftir þann leik kom mikið af afsökunum; ástæðunni fyrir því að þeir væru ekki á réttum stað,“ sagði Bjarni um málið.

„Við megum samt ekki gleyma því að við erum að fara í gegnum lengsta undirbúningstímabil í heimi þannig að allar afsakanir um að við höfum ekki haft tíma til að setja liðið saman; það er ekkert vit í því.

Það verður að koma einhver önnur ástæða fyrir því að liðið er ekki eins og það á að vera. Ef allir eru meiddir þá á þjálfarinn einhvern smá þátt í því. Þannig, betri afsakanir,“ sagði hann enn fremur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana
433Sport
Í gær

Svona er tölfræði Íslands gegn Englandi

Svona er tölfræði Íslands gegn Englandi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fer til Tottenham ef liðið bjargar sér frá falli

Fer til Tottenham ef liðið bjargar sér frá falli
433Sport
Fyrir 2 dögum

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola
433Sport
Fyrir 2 dögum

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést