fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Niðurskurðarhnífurinn áfram á lofti hjá Sýn – Big Ben kippt af dagskrá skömmu eftir að verðið á öllu var hækkað

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 4. febrúar 2026 18:30

Screensho

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Niðurskurðurinn hjá Sýn Sport heldur áfram, en búið er að taka þáttinn Big Ben af dagskrá. Ákvörðun um þetta var tekin á föstudag samkvæmt heimildum 433.is og tilkynnt þeim sem komu að þættinum.

Ekki er langt síðan að þátturinn Varsjá var tekin af dagskrá og því hefur dagskrárgerð í kringum enska boltinn verið skorin hressilega niður á síðustu vikum.

Meira:
Niðurskurður á Sýn nær inn í þáttagerð um enska boltann – Varsjáinni kippt af dagskrá

Á sama tíma hefur Sýn verið að hækka verðið á öllum áskriftaleiðum sínum en Sýn tryggði sér sýningaréttinn á enska boltanum fyrir þetta tímabil. Nýjustu hækkanir tóku gildi í byrjun febrúar en rétt fyrir áramót var verðið á áskriftum einnig hækkað.

Áður var enski boltinn hjá Símanum í sex árin þar á undan.

Big Ben var skemmtiþáttur sem fjallaði um enska boltann og aðrar íþróttir. Guðmundur Benediktsson, Hjálmar Örn Jóhannsson og Kjartan Henry Finnbogason stýrðu þættinum og fengu ávallt tvo góða gesti. Naut þátturinn mikilla vinsælda hjá íþróttaáhugafólki.

Þátturinn var sýndur á fimmtudagskvöldum í beinni útsendingu en síðasti þátturinn fór í loftið á síðustu viku og er ekki lengur á dagskrá hjá Sýn.

Niðurskurður hefur verið innan raða Sýn undanfarna mánuði, verið er að taka til í rekstrinum sem hefur ekki staðið undir væntingum. Hefur það best sést á hlutabréfamarkaði en bréf í félaginu hafa lækkað um rúm 40 prósent á einu ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Eiga enn erfitt með að ræða síðasta sumar – „Þetta tók sinn tíma en maður verður að horfa upp á við“

Eiga enn erfitt með að ræða síðasta sumar – „Þetta tók sinn tíma en maður verður að horfa upp á við“
433Sport
Í gær

Ræða innkomu Ólafs í starfið – „Veit mikið og talar mikið“

Ræða innkomu Ólafs í starfið – „Veit mikið og talar mikið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana
433Sport
Fyrir 2 dögum

Svona er tölfræði Íslands gegn Englandi

Svona er tölfræði Íslands gegn Englandi
433Sport
Fyrir 2 dögum
Rekinn korter í HM
433Sport
Fyrir 2 dögum

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola
433Sport
Fyrir 2 dögum

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu