

Myndband af brasilíska markverðinum Weverton hefur vakið athygli, þar sem hann virðist líða út af í fagnaðarlátum eftir að hafa komist að því hafa verið valinn í landsliðshóp Brasilíu fyrir HM.
Þessi 38 ára gamli markvörður Gremio birti upptöku úr heimahúsi þar sem fjölskyldan trylltist af gleði þegar Carlo Ancelotti tilkynnti hópinn.
Á myndbandinu, sem má sjá hér neðst, sést Weverton hníga til jarðar og kveðst hann hafa dottið aðeins út.
„Ég er bara feginn að bróðir minn lenti ekki ofan á hausnum á mér,“ sagði markvörðurinn í gríni, en bróðir hans hoppaði á sófanum af gleði.
Þetta verður annað heimsmeistaramót Weverton með Brasilíu en hann var einnig í hópnum árið 2022. Þá lék hann tíu mínútur í 4-1 sigri gegn Suður-Kóreu í 16-liða úrslitum.
Brasilía hefur leik á HM gegn Marokkó þann 13. júní í New Jersey.
In Brazil, Grêmio’s goalkeeper Weverton fainted from excitement after finding out he’s going to the World Cup… and nobody noticed because they were too busy celebrating 😂pic.twitter.com/2LW3yTmm9T
— Troll Football Media (@TrollFootball2) May 21, 2026