
Manchester City hefur staðfest að Pep Guardiola muni láta af störfum eftir lokaleik tímabilsins gegn Aston Villa á sunnudag.
Guardiola hefur stýrt City í tíu tímabil og unnið alls 17 stóra titla, þar á meðal sex Englandsmeistaratitla og Meistaradeildina.
„Ekki spyrja mig af hverju ég er að fara. Það er engin sérstök ástæða, en innst inni veit ég að þetta er rétti tíminn,“ sagði Guardiola.
City ætlar að heiðra Spánverjann sérstaklega en nýja norðurstúkan á Etihad-leikvanginum verður nefnd eftir honum. Þá mun félagið einnig reisa styttu af honum við leikvanginn.
Samkvæmt enskum miðlum er Enzo Maresca líklegastur til að taka við liðinu. Hann starfaði áður undir Guardiola hjá City.